FHL er að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna eftir fall úr Bestu deildinni í fyrra og hörmulegt gengi í Lengjubikarnum í vetur.
Hin fjölhæfa Taïs Patterson, fædd 2002, er búin að skrifa undir samning við FHL. Henni er lýst sem tæknilegum og örvfættum leikmanni sem getur spilað margar stöður á vellinum.
Hún lék síðast fyrir Mallbacken í Svíþjóð en þar áður spilaði hún með FC Sion og FC Yverdon í Sviss.
„Við bjóðum Taïs velkomna til FHL og hlökkum til að sjá hana spila í Lengjudeildinni í sumar. Áfram FHL," segir meðal annars í tilkynningu frá félaginu.
Tais er svissnesk en á einnig rætur að rekja til Írlands.
Athugasemdir




