Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
banner
   fös 13. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vestri og Selfoss fá bandaríska framherja (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: Vestri
Vestri hefur styrkt sig fyrir baráttuna í 2. deild kvenna en liðið hefur nælt í bandarískan framherja.

Hún heitir Raniyah Burton en hún kemur til liðsins úr Washington State háskólanum.

Í tilkynningu Vestra segir að hún sé kraftmikill framherji og sé með mikla orku og hungur í að ná árangri.

Þá hefur Selfoss einnig nælt í bandarískan framherja fyrir baráttuna í Lengjudeildinni.

Stevie Reynolds er fædd árið 2004 og hefur spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Hún spilaði síðast með Tarleton State og lék alla tuttugu leiki liðsins á síðasta tímabili.

Hún skoraði níu mörk og lagði upp fimm í þessum 20 leikjum. Hún er mætt til landsins og tók fyrstu æfinguna með liðinu í gær.
Athugasemdir
banner