Njarðvík var að krækja í 26 ára miðjumann sem lék síðast með Dubai City FC í næstefstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Sá heitir Leandro Fernandes Da Cunha og þótti gríðarlega mikið efni á táningsárunum þegar hann lék yfir 40 leiki fyrir yngri landslið Hollands.
Hann ólst upp hjá PSV Eindhoven áður en hann skipti til Juventus, en á ferlinum hefur hann leikið fyrir meistaraflokk hjá Pescara, PEC Zwolle, Jerv og Zalgiris.
Leandro hefur komið víða við og er næsta stopp á Íslandi. Hér ætlar hann að gera sitt besta til að hjálpa Njarðvík upp í Bestu deildina.
09.03.2026 12:13
Fyrrum leikmaður Juventus nálgast Njarðvík
Athugasemdir



