Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25095 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR11.02.2026, 08:17

De Zerbi farinn frá Marseille (Staðfest)

Roberto De Zerbi hefur látið af störfum sem stjóri franska liðsins Marseille en í tilkynningu segir að um sameiginlega ákvörðun hans og félagsins sé að ræða. Marseille fékk 5-0 skell gegn Paris St-Germain í hans síðasta leik en liðið féll úr keppni í Meistaradeildinni nýlega eftir 3-0 tap gegn Club Brugge.

FRÉTTIR10.02.2026, 16:37

Vestri sækir sænskan miðjumann (Staðfest)

Sænski miðjumaðurinn Chriss-Albin Alexander Mörfelt hefur gengið í raðir Vestra og skrifar undir samning út tímabil. Hann kemur vestur frá Östersund í heimalandinu. Mörfelt lék þrjá leiki með Östersund í sænsku Superettunni á síðustu leiktíð en þar áður var hann á mála hjá Öster sem leikur í Allsvenskan.

FRÉTTIR10.02.2026, 12:09

Mættur í Vestra ári eftir að hafa skorað þrennu gegn liðinu (Staðfest)

Breki Þór Hermannsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA og er farinn á láni til Vestra út komandi tímabil. Breki er uppalinn á Snæfellsnesi; var hjá Snæfelli og Víkingi Ólafsvík áður en hann kom á Akranes fyrir tímabilið 2020. Breki er sóknarmaður sem getur leyst margar stöður framarlega á vellinum. Hann er fæddur árið 2003 og á síðasta tímabili skoraði hann ellefu mörk í 29 leikjum á láni hjá Grindavík. <i>„Við bindum miklar vonir við að Breki Þór haldi áfram að vaxa sem leikmaður fyrir vestan,"</i> segir í tilkynningu ÍA.

FRÉTTIR10.02.2026, 06:00

Jón Óskar aftur í Magna (Staðfest)

Varnar- og miðjumaðurinn Jón Óskar Sigurðsson er genginn til liðs við Magna en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið um helgina.

FRÉTTIR09.02.2026, 19:21

Jóhann Berg riftir við Al Dhafra (Staðfest)

Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur rift samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu og Jóhanni á <i>Instagram</i>.

FRÉTTIR09.02.2026, 16:39

Watford hefur ráðið bróður Will Still (Staðfest)

Edward Still hefur verið ráðinn nýr stjóri Watford í ensku Championship-deildinni og skrifaði undir samning til tveggja og hálfs árs. Hann tekur við af Javi Gracia sem sagði upp eftir að hafa verið aðeins þrjá mánuði með stjórnartaumana.

FRÉTTIR09.02.2026, 09:00

Jón Gísli í Hauka (Staðfest) - Theodór Ernir skrifar undir

Haukar tilkynntu í gær að Jón Gísli Stefánsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir til næstu þriggja ára. Hann kemur til Hauka frá Kormáki/Hvöt. Kantmaðurinn er uppalinn hjá Kormáki, fæddur árið 2004 og hefur einnig spilað með Tindastóli á sínum ferli. Hann fór árið 2022 á reynslu til sænska félagsins Örgryte.

FRÉTTIR09.02.2026, 08:00

Henríetta heim í HK (Staðfest)

Henríetta Ágústsdóttir hefur skrifað undir samning við HK sem gildir til ársins 2028. Henríetta, sem uppalin er hjá HK, er mætt aftur til félagsins frá Stjörnunni þar sem hún hefur verið síðustu tvö tímabil. Hún er tvítugur miðjumaður sem lék á láni hjá Þór/KA á síðasta tímabili. Hún skoraði tvö mörk í ellefu leikjum með liðinu. Henríetta á að baki tólf leiki fyrir yngri landsliðin og hefur skorað í þeim eitt mark.

FRÉTTIR09.02.2026, 06:00

Vestri fær argentínskan varnarmann (Staðfest)

Vestri tilkynnti í gær um komu Florencia Barraza til félagsins en hún er reynslumikill argentínskur varnarmaður. Hún á að baki feril í heimalandinu, Kosta Ríka, á Spáni og Ítalíu. Hún er 31 árs og bætist við hópinn hjá Vestra, en félagið hefur verið duglegt að sækja liðsstyrk í liðið sem er í 2. deild.

FRÉTTIR08.02.2026, 10:00

Agbadou og fleiri til Besiktas (Staðfest)

Tyrkneska stórveldið Besiktas bætti ýmsum leikmönnum við hópinn hjá sér í janúarglugganum og var miðvörðurinn Emmanuel Agbadou sá dýrasti.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.