01.01.09 - 12:44
Hafliði Breiðfjörð
Billy Davies tekur við Nottingham Forest (Staðfest)

Billy Davies.

Mynd: Getty Images

Billy Davies.

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur ráðið Billy Davies sem nýjan knattspyrnustjóra liðsins. Davies sem er 44 ára gamall fyrrverandi stjóri Derby gerir þriggja og hálfs árs samning við Forest og hefur störf á mánudag.
David Kelly er nýr aðstoðarstjóri liðsins og hann mun stýra liðinu ásamt John Pemberton sem stýrði liðinu tímabundið, þegar liðið mætir Manchester City í FA Cup á laugardaginn.
Davies tekur við starfinu af Colin Calderwoode sem var rekinn eftir 4-2 tap heima gegn Doncaster á annan í jólum. Calderwood hafði stýrt liðinu í tvö og hálft ár.
,,Árangur Billy í Championship deildinni er frábær og við vonum að hann geti haldið áfram að skila honum með okkur,\" sagði Mark Arthur framkvæmdastjóri Nottingham Forest á vefsíðu félagsins.
Davies stýrði síðast Derby sem hann kom upp í ensku úrvalsdeildina á fyrstu leiktíð við stjórn liðsins en missti svo starfið á miðju tímabili þar, í nóvember 2007 eftir aðeins einn deildarsigur.

Heimild: BBC