01.01.12 - 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Íris Dögg Gunnarsdóttir í Fylki (Staðfest)

Íris Dögg í búningi Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Íris Dögg í búningi Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt, Fylki að nýju frá KR.
Hún gerði eins árs samning við Fylki en vegna náms í Bandaríkjunum mætir hún ekki til félagsins fyrr en í maí og fer svo aftur utan í haust.

Hún er 22 ára gömul og uppalin hjá Fylki var svo í markinu hjá KR síðan frá árinu 2006 og út þessa leiktíð. Hún hefur leikið 79 meistaraflokksleiki í deild og bikar.
Hún fékk þau skilaboð frá KR í lok tímabilsins að félagið hefði ekki áhuga á að framlengja við hana samningnum og því ákvað hún að róa á önnur mið.
Íris Dögg hefur í vetur verið í skóla í Alabama í Bandaríkjunum og spilar þar í háskólafótboltanum. Henni hefur gengið mjög vel þar og verið tvisvar valin markvörður umferðarinnar og sló í vetur 13 ára gamalt skólamet fyrir flestar markvörslur á einu tímabili.
Hún spilaði á sínum tíma 12 leiki með Fylki árin 2004 og 2005 og á að baki 7 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands.