Fotbolti.net
01.01.12 - 19:45
Hafliði Breiðfjörð

Manolo Jimenez tekur við Real Zaragoza (Staðfest)

Manolo Jimenez.

Manolo Jimenez.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Zaragoza á Spáni hefur gengið frá ráðningu á Manolo Jimenez sem næsta þjálfara liðsins en hann stýrir því út tímabilið.
Jimenez tekur við liðinu af Javier Aquirre sem var rekinn fyrr í vikunni eftir að liðið fór á botninn í spænsku deildinni en liðið hefur tapað átta af síðustu níu leikjum.

Jimenez sem er 47 ára gamall var mestanhluta ferils síns hjá Sevilla og var þar sem leikmaður frá 1983 til 1997. Svo varð hann þjálfari varaliðsins í sjö ár til 2007 þegar hann tók við aðalliðinu í þrjú ár.

Eftir að hann var rekinn frá Sevilla í mars árið 2010 tók hann við AEK Aþenu og vann gríska bikarinn með liðinu.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.