01.02.05 - 01:16
Reid og Dawson til Tottenham (Staðfest)

Michael Dawson og Andy Reid

Michael Dawson og Andy Reid

Tottenham hafa gengið frá kaupunum á þeim Andy Reid og Michael Dawson frá Nottingham Forest. Kaupverðið á þeim eru 8 milljónir punda en Reid var lengi vel orðaður við Tottenham og var mjög ánægður með að vera loksins kominn á White Hart Lane:
"Ég er hæstánægður að þetta er frágengið" sagði Reid. "Þetta hefur verið lengi í umræðunni og það er frábært að þessu er lokið. Ég hlakka mikið til að spila í Úrvalsdeildinni.
Forgangsatriðið mitt er að vinna mér sæti í liðinu. Ég hef fylgst með þeim og hef líkað vel það sem ég hef séð. Þetta er ungt lið sem er í mótun og þeri verða bara betri og betri."
Dawson var ekki síður ánægður: "Ég er mjög ánægður með að það sé búið að ganga frá þessu og ég var aldrei í vafa um þetta" sagði þessi stóri og stæðilegi varnarmaður. "Þegar ég fékk tækifæri til að koma á stað eins og þennan þá gerði ég strax upp hug minn.
Það hefur alltaf verið draumur minn að spila í Úrvalsdeildinni. Ég hef verið orðaður við nokkur lið á undanförnum árum og loksins er komið að því. Ég get ekki
beðið eftir því að fara í treyjuna og vonandi gengur mér vel."