Fotbolti.net
01.02.05 - 09:57

Walter Pandiani til Birmingham (Staðfest)

Walter Pandiani til Birmingham (Staðfest)
Canon
Deportivo Coruna samþykktu á síðustu stundu að lána úrugvæann Walter Pandiani til Birmingham út tímabilið. Þessi 28 ára gamli sóknarmaður vildi komast frá Riazor eftir að liðið refsaði honum en hann gagnrýndi Javier Irueta þjálfara liðsins opinberlega ásamt nokkrum liðsfélögum sínum.
Búist var við því að Pandiani færi til Fiorentina en það féll uppfyrir eftir að ítalska liðið ákvað að splæsa í Valeri Bojinov frá Lecce. Pandiani var meðal annars orðaður við Newcastle en í gærkvöldi var allt sett á fullt til að klára félagaskiptin til Birmingham fyrir miðnætti.

Pandiani er sterkur í loftinu og hefur verið hjá Deportivo í fimm ár en hann kom þangað frá Penarol. Hann náði ekki að komast strax í byrjunarliðið en eftir að hafa verið hjá Mallorca í láni gekk honum æ betur og endaði með 13 mörk í deildinni í 6 í Evrópu á síðasta tímabili.

Craig Bellamy neitaði að ganga til liðs við Birmingham sem fengu tilboð sitt í hann samþykkt um helgina. Pandiani er sjöundi leikmaðurinn sem Birmingham hefur fengið til sín í janúar.

Nýjir leikmenn hjá Birmingham:
Robbie Blake
Salif Diao
Jermaine Pennant
Mehdi Nafti
Njazi Kuqi
Alex Bruce
Walter Pandiani
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.