01.02.05 - 09:59
Abel Xavier til Roma (Staðfest)




Roma tryggðu sér hinn lítríka varnarmann Abel Xavier í gær rétt fyrir lok félagaskiptagluggans. Hann var til reynslu hjá félaginu sem ákvað að fá hann til sín á endanum.
Xavier er 32 ára gamall en hann spilaði fyrir Bari á tímabilinu 1995-1996. Þá spilaði hann með Everton og gekk svo til liðs við Liverpool. Hann var lánaður til Galatasaray í Tyrklandi áður en hann var leystur undan samningi og gekk þá til liðs við Hannover í Þýskalandi.
Roma lánuðu Vincent Candela til Bolton í gær og því er Xavier kærkomin viðbót fyrir ítalska liðið.
Roma lánuðu Vincent Candela til Bolton í gær og því er Xavier kærkomin viðbót fyrir ítalska liðið.
