01.02.07 - 00:25
Magnús Már Einarsson
Shaun Maloney til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur staðfest kaup sín á Shaun Maloney framherja Glasgow Celtic en gengið var frá þeim rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.
Maloney sem er 24 ára kostar Aston Villa eina milljón punda en hann hefur gert þriggja og hálfs árs samning við félagið. Hann er þriðji framherjinn sem Celtic fær í janúar en áður hafði félagið krækt í John Carew og Ashley Young.
Maloney sem getur einnig leikið framarleag á miðjunni er uppalinn hjá Celtic og hann lék sinn fyrsta leik með félaginu í apríl árið 2001.
Tímabilið 2005/2006 komst hann síðan í sögubækurnar þegar hann var fyrsti leikmaðurinn í Skotlandi til að vera bæði valinn leikmaður ársins og ungi leikmaður ársins á sama tímabilinu.

Heimild: Heimasíða Aston Villa