Fotbolti.net
01.02.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Giles Barnes til Fulham (Staðfest)

Giles Barnes til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Giles Barnes miðjumaður Derby County hefur gengið til liðs við Fulham á láni út leiktíðina.
Þessi tvítugi leikmaður var kynntur fyrir stuðningsmönnum Fulham fyrir leik liðsins gegn Portsmouth í gær.

Barnes hefur leikið fyrir yngri landslið Englendinga en þessi tvítugi leikmaður skoraði tvívegis þegar að Derby tapaði 4-2 fyrir Manchester United í deildabikarnum á dögunum.

Barnes átti stóran þátt í að Derby komst upp í ensku úrvalsdeildina vorið 2007 en hann missti af hluta síðustu leiktíðar vegna meiðsla.

Á þessari leiktíð hefur hann síðan ekki átt fast sæti í liði Derby og einungis einu sinni verði í byrjunarliði í Championship deildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.