Fotbolti.net
01.02.09 - 21:13
Hafliði Breiðfjörð

Shay Given til Manchester City (Staðfest)

Shay Given.

Shay Given.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City staðfesti í kvöld á vefsíðu sinni að markvörðurinn Shay Given sé genginn í raðir félagsins frá Newcastle United en kaupverðið var ekki gefið upp.
Given sem er 32 ára gamall markvörður skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Manchester City og er því kominn aftur til Norður Englands þar sem hann hóf feril sinn með Blackburn Rovers árið 1994.

Given lék yfir 450 leiki, þar af 354 í ensku úrvalsdeildinni er hann var hjá Newcastle Unitd og hefur leikið 91 leik með landsliði Írlands og er með því leikjahæsti markvörður Írlands frá upphafi.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem City fær í janúarglugganum, áður höfðu komið Wayne Bridge, Craig Bellamy og Nigel de Jong. Given fær treyjunúmerið 37.

Heimild: Vefsíða Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.