Fotbolti.net
01.02.09 - 22:14
Hafliði Breiðfjörð

Ben Haim til Sunderland (Staðfest)

Ben Haim í leik með Chelsea.

Ben Haim í leik með Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá samningi um að fá varnarmanninn Tal Ben Haim á láni frá Manchester City út tímabilið.
Ísraelinn er 26 ára gamall. Hann hafði aðeins tekið þátt í níu úrvalsdeildarleikjum með City á tímabilinu.

Hann hafði gengið í raðir Chelsea frá Bolton í júní árið 2007 á frjálsri sölu en fór svo þaðan til City í júlí í fyrra.

,,Ég hef áður unnið með honum og veit hvað ég er að fá,\" sagði Ricky Sbragia stjóri Sunderland í dag en þeir höfðu unnið saman hjá Bolton.

Sbragia var þá aðalliðsþjálfari Bolton árin 2005 - 2007 en fór svo þaðan í þjálfarateymi Sunderland.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.