01.02.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Keirrison til Fiorentina frá Barcelona (Staðfest)

Keirrison er farinn frá Barcelona.

Mynd: Getty Images

Keirrison er farinn frá Barcelona.

Mynd: Getty Images
Fiorentina styrkti leikmannahóp sinn í gær þegar Keirrison gekk til liðs við félagið frá Barcelona á Spáni.
Brasilíumaðurinn gerir tveggja ára láns samning við Fiorentina sem fær kost á að kaupa hann að þeim tíma loknum á 12 milljónir punda.
Samningurinn veltur reyndar enn á því að hann komist í gegnum læknisskoðun í dag en félagið staðfesti samt komu hans í gær.
Keirrison varð 21 árs gamall í síðasta mánuði. Hann spilar sem framherji og er 184 cm á hæð.
Hann hóf feril sinn hjá Coritiba og Palmeiras en var keyptur til Barcelona í júní 2009. Síðustu sex mánuði var hann á láni hjá Benfica í Portúgal.

Heimild: Football Italia