Fotbolti.net
01.02.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Liam Killa, Ingvar Már, Sigþór og Egill Daði í Magna (Staðfest)

Leikmennirnir fjórir, Þorsteinn Þormóðsson formaður Magna og Atli Már Rúnarsson þjálfari liðsins.

Leikmennirnir fjórir, Þorsteinn Þormóðsson formaður Magna og Atli Már Rúnarsson þjálfari liðsins.

Canon

Mynd: Vikudagur

Magni Grenivík úr þriðju deild hefur fengið liðsstyrk en fjórir leikmenn hafa gengið til liðs við félagið.
Liam Killa, Sigþór Hafsteinn Baldursson, Ingvar Már Gíslason og Egill Daði Angantýsson eru leikmennirnir sem um ræðir.

Liam Killa er miðjumaður frá Wales hann lék með Haukum í öðrum flokki og með ÍH sumarið 2008.

Sigþór Hafsteinn er afar reyndur vinstri bakvörður en hann hefur leikið með Dalvík/Reyni undanfarin ár.

Ingvar Már var í lykilhlutverki hjá Magna frá 2004-2009 og hann hjálpaði Dalvík/Reyni síðan að komast upp úr þriðju deildinni árið 2010. Þessi 35 ára gamli leikmaður tók sér síðan frí frá fótbolta í fyrra.

Egill Daði lék einnig með Magna frá 2003-2009 en hann hefur ekkert spilað síðustu tvö árin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.