01.02.12 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Nicky Maynard til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham keypti framherjann Nicky Maynard frá Bristol City áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.
Fleiri félög sýndu þessum 25 ára gamla leikmanni áhuga í janúar en West Ham náði á endanum að krækja í hann.
Maynard skoraði 46 mörk í 130 leikjum með Bristol en hann kom til félagsins frá Crewe Alexandra árið 2008.
Sam Allardyce, stjóri West Ham, var grimmur á leikmannamarkaðinum í gær en hann krækti einnig í miðjumanninn Ravel Morrison frá Manchester United sem og framherjann Ricardo Vaz Te frá Barnsley.
Allardyce og félagar í West Ham steinlágu 5-1 gegn Ipswich í gærkvöldi en Hamrarnir eru þrátt fyrir það ennþá á toppnum, tveimur stigum á undan Southampton.

Heimild: Heimasíða West Ham