Fotbolti.net
01.02.12 - 07:35
Alexander Freyr Tamimi

Ryan Williams til Fulham (Staðfest)

Ryan Williams til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty

Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fengið hinn unga og efnilega Ryan Williams til liðs við sig frá Portsmouth.
Skrifaði þessi 18 ára Ástrali undir samning við Lundúnarliðið til ársins 2014, en kaupverðið er óuppgefið.

Williams hafði spilað sex leiki fyrir Portsmouth það sem af var þessu tímabili, en hann spilaði leik fyrir varalið Fulham í 1-0 sigri gegn Úlfunum á mánudagskvöld.

Hann gekk ungur að árum til liðs við unglingalið Portsmouth en í ár var fyrsta tímabilið sem hann fékk að spreyta sig með aðalliðinu.

Heimild: Vefur Fulham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.