01.02.12 - 08:07
Alexander Freyr Tamimi
Ryan Bennett til Norwich City (Staðfest)

Paul Lambert er ánægður með nýja leikmanninn.

Mynd: Getty Images

Nýliðar Norwich City í ensku úrvalsdeildinni hafa gengið frá kaupunum á Ryan Bennett, en hann kemur til liðsins frá Peterborough United í Championship deildinni.
Þessi U21 landsliðsmaður Englendinga skrifaði undir þriggja og hálfs ára samning við Norwich en kaupverðið var ekki gefið upp. Hann verður þó áfram hjá sínu gamla félagi á láni þar til 28. febrúar.
Hans fyrsti leikur fyrir Norwich gæti því verið gegn Stoke þann 3. mars á Britannia leikvanginum. Paul Lambert stjóri liðsins var hæstánægður með kaupin.
,,Ég er í skýjunum með að hafa fengið Ryan. Ferill hans hjá Grimsby og Peterborough hefur lofað góðu, hann er U21 landsliðsmaður Englands og hann er mikið efni,\" sagði Lambert.
,,Hann er með frábæran leikskilning, yfirvegaður á boltanum og á besta aldri.\"

Heimild: Vefur Norwich