01.02.12 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Danny Higginbotham til Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Danny Higginbotham, varnarmaður Stoke, gekk í gær til liðs við Nottingham Forest á láni út tímabilið.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að vinna sig inn í lið Stoke að nýju eftir átta mánaða fjarveru vegna meiðsla á hné og nú hefur hann ákveðið að róa á önnur mið.

Higginbotham var á mála hjá Manchester United á sínum tíma en hann hefur verið hjá Stoke síðan árið 2008.
Higginbotham gæti leikið sinn fyrsta leik með Nottingham Forest á sunnudag þegar liðið mætir hans gömlu félögum í Derby County.

Heimild: Sky