01.02.12 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Marvin Sordell til Bolton (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bolton náði að kaupa framherjann Marvin Sordell frá Watford rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé í kringum þrjár milljónir punda.

Sordell, sem er tvítugur, hefur skorað 27 mörk í 82 leikjum með Watford á ferli sínum.
,,Ég er ánægður með að hafa fengið Marvin til félagsins því það voru mörg félög í ensku úrvalsdeildinni á eftir honum,\" sagði Owen Coyle stjori Bolton.
,,Við vitum að hann hefur mikla hæfileika og ég hlakka til að vinna með honum.\"
Sordell er í enska U21 árs landsliðinu en hann skoraði meðal annars gegn Íslendingum síðastliðið haust.

Heimild: Sky