Fotbolti.net
01.02.12 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Pól Jóhannus Justinussen til Aab (Staðfest)

Pól Jóhannus Justinussen til Aab (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Pól Jóhannus Justinussen, sem lék með Val í sumar, hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið Aab.
Þessi 22 ára gamli leikmaður yfirgaf herbúðir Vals á dögunum og á dögunum fór hann til Aab á reynslu.

Pól nú skrifað undir samning við félagið sem situr í sjöunda sæti dönsku deildarinnar þegar vetrarfrí er í deildinni.

Pól, sem er færeyskur landsliðsmaðiur, skoraði tvö mörk í 21 leik með Val í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

Pól var einn af þremur færeysku leikmönnum sem lék með Val síðastliðið sumar en Christian Mouritsen og Jónas Þór Næs hafa einnig farið frá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.