01.02.12 - 18:21
Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Freyr Sigurðsson í Val (Staðfest)

Kristinn Freyr í leik með Fjölni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kristinn Freyr Sigurðsson er genginn til liðs við Val frá Fjölni en þetta var staðfest á vef Hlíðarendafélagsins í dag. Kristinn Freyr var samningsbundinn Fjölni út næsta ár en Valur náði samkomulagi við felagið um kaupverð í síðasta mánuði og hefur nú náð samkomulagi við leikmanninn sjálfan.
Kristinn Freyr er 21 árs gamall framherji sem hefur leikið með meistaraflokki Fjölnis frá árinu 2007 en hann hafði komið til félagsins frá Aftureldingu tveimur árum áður. Hann hefur leikið 59 leiki með Fjölni í deild og bikar og skorað í þeim leikjum átta mörk.
Auk þess hefur hann leikið tvo leiki með U17 ára landsliði Íslands og fjóra með U19 ára landsliðinu. Kristinn Freyr gerði fjögurra ára samning við Valsmenn.
Hann er sjöundi leikmaðurinn sem kemur til Vals í vetur. Áður höfðu komið þeir Hilmar Rafn Emilsson, Ásgeir Þór Ingólfsson og Úlfar Hrafn Pálsson frá Haukum, Atli Heimisson frá Asker, Hafsteinn Briem frá HK og Brynjar Kristmundsson frá Víkingi Ólafsvík en sá síðastnefndi hafði reyndar verið á láni hjá Val á síðari hluta síðustu leiktíðar.
Valur hefur hinsvegar misst mikið líka, því átta leikmenn eru þegar farnir. Sigurbjörn Hreiðarsson fór í Hauka, Færeyingarnir Jónas Tór Næs, Pól Jóhannus Justiniusen og Christian Mouritsen eru farnir, Haraldur Björnsson og Ingólfur Sigurðsson farnir í atvinnumennsku, Jón Vilhelm Ákason í ÍA og Guðmundur Steinn Hafsteinsson fór í Víking Ólafsvík á miðju sumri.

Heimild: Vefur Vals