Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 19:54
Ívan Guðjón Baldursson
Javi Gracia yfirgefur Watford (Staðfest)
Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Javi Gracia er farinn frá Watford eftir tæpa fjóra mánuði í starfi.

Gracia sagði starfinu sínu lausu í dag eftir tap á heimavelli gegn Swansea City í gær, en það var fimmti leikur Watford í röð án sigurs.

Liðið var að gera flotta hluti undir stjórn Gracia fyrir áramót en þjálfarinn yfirgefur félagið eftir ósætti við stjórnendur.

Watford er að glíma við meiðslavandræði og heimtaði Gracia að fá inn liðsstyrk í janúarglugganum, sem hann fékk ekki. Hann talaði um að hafa ekki lengur metnað fyrir starfinu þegar hann sagði upp.

Charlie Daniels tekur við sem bráðabirgðaþjálfari hjá Watford þar til nýr aðili finnst, með Dan Gosling og Adrian Mariappa sér til aðstoðar.

Watford er í efri hluta Championship deildarinnar, fjórum stigum frá umspilssæti og með leik til góða.

Gracia þjálfaði Leeds, Al-Sadd, Valencia, Rubin Kazan, Malaga og Osasuna áður en hann tók við Watford síðasta haust. Það var í annað sinn sem hann tók við Watford eftir að hafa gert flotta hluti með liðið í ensku úrvalsdeildinni og FA bikarnum árin 2018 og 2019.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 30 17 7 6 63 35 +28 58
2 Middlesbrough 30 17 7 6 47 29 +18 58
3 Hull City 29 16 5 8 48 40 +8 53
4 Ipswich Town 29 14 9 6 49 28 +21 51
5 Millwall 30 14 8 8 37 36 +1 50
6 Wrexham 30 12 11 7 44 37 +7 47
7 Derby County 30 12 9 9 44 37 +7 45
8 Preston NE 30 11 11 8 37 34 +3 44
9 Bristol City 30 12 7 11 40 36 +4 43
10 Watford 29 11 10 8 39 35 +4 43
11 QPR 30 12 7 11 42 43 -1 43
12 Stoke City 30 12 6 12 34 28 +6 42
13 Birmingham 30 11 9 10 41 38 +3 42
14 Southampton 30 10 10 10 43 41 +2 40
15 Swansea 30 11 6 13 34 37 -3 39
16 Leicester 30 10 8 12 40 45 -5 38
17 Sheffield Utd 29 11 3 15 40 42 -2 36
18 Charlton Athletic 29 9 8 12 29 38 -9 35
19 Norwich 30 9 6 15 37 42 -5 33
20 Portsmouth 28 8 9 11 27 37 -10 33
21 West Brom 30 9 5 16 32 47 -15 32
22 Blackburn 29 7 8 14 26 38 -12 29
23 Oxford United 29 6 9 14 27 38 -11 27
24 Sheff Wed 29 1 8 20 18 57 -39 -7
Athugasemdir
banner
banner