Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 16:34
Ívan Guðjón Baldursson
Maignan orðinn launahæstur (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Franski markvörðurinn Mike Maignan verður áfram hjá AC Milan eftir að félaginu tókst að gera langtímasamning við hann. Maignan verður með nýja samningnum launahæsti leikmaður félagsins ásamt nokkrum stjörnum.

Talið er að Maignan fái mjög svipuð laun og portúgalska stórstjarnan Rafael Leao eftir að hafa skrifað undir, en aðeins Christian Pulisic, Adrien Rabiot og Christopher Nkunku eru taldir vera í sama launaflokki innan félagsins.

Maignan er algjör lykilmaður í liði Milan en samningur hans við félagið átti að renna út næstkomandi sumar.

Markvörðurinn hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United, Juventus og Barcelona síðustu mánuði en verður áfram í Mílanó.

Milan er í titilbaráttu í Serie A, fimm stigum á eftir nágrönnum sínum í toppliði Inter.

Maignan er 30 ára gamall og gerir fjögurra og hálfs árs samning við Milan með möguleika á auka ári.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 23 17 2 4 50 19 +31 53
2 Milan 22 13 8 1 35 17 +18 47
3 Napoli 23 14 4 5 33 21 +12 46
4 Roma 22 14 1 7 27 13 +14 43
5 Juventus 22 12 6 4 35 17 +18 42
6 Como 23 11 8 4 37 16 +21 41
7 Atalanta 23 9 9 5 30 20 +10 36
8 Lazio 23 8 8 7 24 21 +3 32
9 Bologna 22 8 6 8 32 27 +5 30
10 Sassuolo 23 8 5 10 27 29 -2 29
11 Udinese 22 8 5 9 25 34 -9 29
12 Cagliari 23 7 7 9 28 31 -3 28
13 Torino 23 7 5 11 22 40 -18 26
14 Cremonese 23 5 9 9 20 29 -9 24
15 Genoa 23 5 8 10 27 34 -7 23
16 Parma 22 5 8 9 14 26 -12 23
17 Lecce 23 4 6 13 13 30 -17 18
18 Fiorentina 23 3 8 12 25 36 -11 17
19 Pisa 23 1 11 11 19 40 -21 14
20 Verona 23 2 8 13 18 41 -23 14
Athugasemdir
banner
banner
banner