Þýski markvörðurinn Stefan Ortega er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Man City. Kaupverðið gæti orðið allt að 500 þúsund pund en hann skrifar undir samning út tímabilið.
Hann mun keppa við Matz Sels um byrjunarliðssæti en hann kemur til liðsins eftir að John Victor meiddist illa á hné fyrir nokkrum vikum.
Ortega spilaði 56 leiki undir stjórn Pep Guardiola og var hluti af liðinu sem vann þrennuna tímabilið 2022/23.
„Stefan kemur með frábæra reynslu og hugarfar sigurvegara þar sem hann var hluti af sigursælu liði undanfarin tímabil. Hann stóð upp úr um leið og það var ljóst að við þurftum að skoða markmannsstöðuna. Hann mun veita markmannshópnum góða samkeppni og mun hjálpa liðinu innan sem og utan vallar," sagði Edu Gaspar, yfirmaður fótboltamála hjá Nottingham Forest.
Stefan Ortega Moreno is a Red! ???? pic.twitter.com/v2USok0nHb
— Nottingham Forest (@NFFC) February 1, 2026
Athugasemdir



