Jordan Pickford, markvörður Everton, var maður leiksins í 1-0 sigri liðsins á Southampton í kvöld en Sky Sports gefur leikmönnum einkunnir eftir leikinn.
Pickford var frábær í rammanum og steig upp þegar liðið þurfti á hjálp hans að halda. Hann fær 8 fyrir frammistöðuna.
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp sigurmark Richarlison í leiknum en þetta var þriðja stoðsending Gylfa í deildinni á þessu tímabili. Hann fær 7 líkt og fimm aðrir leikmenn liðsins.
Hægt er að sjá einkunnir leikmanna hér fyrir neðan.
Everton: Pickford (8), Godfrey (7), Holgate (6), Digne (6), Keane (6), Allan (7), Gomes (7), Doucoure (6), Sigurdsson (7), Richarlison (7), Calvert-Lewin (7).
Southampton: Forster (6), Bertrand (6), Salisu (5), Bednarek (6), Vestergaard (7), Ward-Prowse (7), Djenepo (7), Armstrong (7), Redmond (6), Adams (6), Ings (6).
Varamenn: Tella (6)
Athugasemdir