01.04.10 - 13:41
Hafliði Breiðfjörð
Katrín Ómarsdóttir til Kristianstad (Staðfest)

Katrín í leik með íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Sænska kvennafélagð Kristianstad staðfesti á vef sínum í gær að Katrín Ómarsdóttir landsliðskona Íslands sé gengin í raðir félagsins frá KR.
Þar kemur fram að Katrín hafi skrifað undir skammtíma samning við Kristianstad en hún býr og nemur í Bandaríkjunum.
Hún mun koma til sænska félagsins fyrir grannaslaginn gegn LdB Malmö 9. maí næstkomandi og spilar með liðinu fram að sumarfríi deildarinnar.
Á þeim tíma mun hún ná að spila níu leiki með Kristianstad.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar sænska félagið og fyrir hjá þeim eru þrjár íslenskar stúlkur, Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Erla Steina Arnardóttir.

Heimild: Vefur Kristianstad