Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Casemiro: Hann er nútíð og framtíð United
Casemiro og Mainoo spiluðu talsvert saman 2023/24 og spila núna alla leiki saman á miðjunni.
Casemiro og Mainoo spiluðu talsvert saman 2023/24 og spila núna alla leiki saman á miðjunni.
Mynd: EPA
Casemiro er á því að Kobbie Mainoo og Matheus Cunha séu framtíð félagsins. Casemiro hefur byrjað við hlið Mainoo í öllum leikjum liðsins undir stjórn Michael Carrick.

Þeir léku saman og mynduðu öflug tengsl undir stjórn Erik ten Hag en náðu takmarkað að spila saman undir stjórn Ruben Amorim.

„Kobbie er nútíðin og framtíðin. Ég held að hann sé ein af bestu áttunum og geti verið það næstu tólf árin. Hann er leikmaður sem ég er mjög hrifinn af."

„Hann vill alltaf fá boltann. Hann er frábær leikmaður og hefur sýnt það í úrslitaleikjum. Hann skoraði í úrslitaleik enska bikarsins 2024 og spilaði úrslitaleik EM,"
segir Casemiro.

Brasilíski miðjumaðurinn er líka mjög hrifinn af samlanda sínum, Cunha.

„Ég veit ekki hvaða stoðsending er mín uppáhalds, en ein af þeim er fyrir Cunha því ég ber mjög sterkar tilfinningar til hans sem leikmann og hann vildi opna markareikninginn sinn. Og ég var sá fyrsti til að leggja upp á hann og ég er viss um að hann eigi alltaf eiga eftir að muna eftir því. Hann er leikmaður sem á eftir að vera svo mikilvægur fyrir United."
Slapp
banner
banner