Hvíti riddarinn er búinn að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök er liðið reynir fyrir sér í 2. deild eftir að hafa unnið 3. deildina í fyrra.
Mosfellingar eru búnir að fá tvo miðjumenn úr röðum Aftureldingar sem eru enn gjaldgengir í 2. flokk félagsins.
Miðjumennirnir heita Ísak Þráinsson og Benedikt Sturla Steingrímsson og eiga báðir fjölskyldutengingar í Hvíta riddarann.
Eldri bróðir Ísaks spilaði lengi með liðinu og þá er faðir Benedikts einn af stofnendum félagsins.
Örnólfur Sveinsson er þá kominn úr röðum Árbæjar. Hann er tvítugur hafsent sem hefur komið sterkur inn í leikmannahóp Hvíta riddarans á undirbúningstímabilinu.
Örri er uppalinn hjá ÍR og skoraði eitt mark í fjórum leikjum með Árbæ í 3. deildinni í fyrra.



