Gabríel Snær Gunnarsson, leikmaður ÍA, var með fjóra rétta þegar hann spáði í leiki síðustu helgar í enska boltanum. Gleðigjafinn Óskar Borgþórsson ætlar að reyna að bæta það. Óskar er leikmaður Íslandsmeistara Víkings og er einn af öflugri leikmönnum Bestu deildarinnar.
Svona spáir hann leikjunum í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar:
Svona spáir hann leikjunum í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar:
Leeds 2 - 0 Burnley (19:00 í kvöld)
Þetta er þægilegur 2-0 sigur hja Leedsurunum. Föstudagskvöld og alvöru stemning eftir leik.
Brentford 2 - 1 West Ham (14:00 á morgun)
Ekki besti Lundúnarslagurinn en þessi leikur fer 2-1 fyrir Brentford. Thiago setur bæði!
Newcastle 2 - 2 Brighton (14:00 á morgun)
Þetta er einhver mesti jafnteflisleikur sögunnar bara. Newcastle búnir að tapa fimm í röð en 2-2 verður niðurstaðan og stuð og stemning á St. James Park.
Wolves 0 - 2 Sunderland (14:00 á morgun)
Úlfarnir vinna aldrei þennan leik, Sunderland vilja hefna fyrir 0-5 tap í síðasta leik og taka þetta 2-0 þægilega.
Arsenal 2 - 0 Fulham (16:30 á morgun)
Góður vinur minn og harðasti Nallari landsins, Theodór Ingi Óskarsson, sagði við mig 2-0 fyrir Arsenal og Saka með tvennu og þá hlustar maður bara.
Bournemouth 1 - 1 Crystal Palace (13:00 á sunnudag)
Galið að Bournemouth séu svona ofarlega, ekki bunir að tapa síðan 3. janúar sem er insane tölfræði og þeir fara ekki að tapa á heimavelli á móti palace en að vísu fer þetta jafntefli. 17. Jafnteflið hjá Bournemouth (Staðfest).
Man Utd 2 - 3 Liverpool (14:30 á sunnudag)
RISA leikur helgarinnar sem mun ekki valda vonbrigðum. Florian Wirtz veislan heldur áfram og setur hann í fluggírinn í þessum leik, skorar 1 og 2 assist. 2-3 fyrir Liverpool bara því Liverpool fær alltaf á sig mark.
Aston Villa 3 - 1 Tottenham (18:00 á sunnudag)
Þetta er auðveldur 3-1 sigur hjá Aston Villa. Galið að stuðullinn á Villa sé 2, það er verið að gefa pening.
Chelsea 2 - 1 Nottingham Forest (14:00 á mánudag)
Chelsea nær að tengja tvo sigra saman eftir sigurinn á móti Leeds í bikarnum og þetta fer 2-1 fyrir Chelsea.
Everton 1 - 3 Man City (19:00 á mánudag)
1-3 fyrir City og Haaland hendir í þrennu Duuuush.
Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Hallgrímur Mar (5 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Gabríel Snær (4 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Jakob Gunnar (3 réttir)
Gunni Birgis (3 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Stefán Árni (2 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)
Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í ensku úrvalsdeildinni.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 34 | 22 | 7 | 5 | 64 | 26 | +38 | 73 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 34 | 17 | 10 | 7 | 60 | 46 | +14 | 61 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Brighton | 34 | 13 | 11 | 10 | 48 | 39 | +9 | 50 |
| 7 | Bournemouth | 34 | 11 | 16 | 7 | 52 | 52 | 0 | 49 |
| 8 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 9 | Brentford | 34 | 13 | 9 | 12 | 49 | 46 | +3 | 48 |
| 10 | Fulham | 34 | 14 | 6 | 14 | 44 | 46 | -2 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 34 | 12 | 10 | 12 | 36 | 45 | -9 | 46 |
| 13 | Crystal Palace | 33 | 11 | 10 | 12 | 36 | 39 | -3 | 43 |
| 14 | Newcastle | 34 | 12 | 6 | 16 | 46 | 50 | -4 | 42 |
| 15 | Leeds | 34 | 9 | 13 | 12 | 44 | 51 | -7 | 40 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 34 | 9 | 9 | 16 | 42 | 58 | -16 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 34 | 4 | 8 | 22 | 34 | 68 | -34 | 20 |
| 20 | Wolves | 34 | 3 | 8 | 23 | 24 | 62 | -38 | 17 |


