01.06.07 - 09:33
Magnús Már Einarsson
Atli Heimisson til ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
ÍBV úr fyrstu deild karla hefur fengið sóknar og kantmanninn efnilega Atla Heimisson frá Aftureldingu. Hann hefur fengið leikheimild og getur hann því leikið sinn fyrsta leik með ÍBV gegn Stjörnunni í fyrstu deildinni í kvöld.
,,Ég vil þakka öllum hjá Aftureldingu, þetta er frábært félag, með flotta umgjörð, góða stráka og frábæran þjálfara (Ólaf Ólafsson) sem hefur hjálpað mér mikið. Ég vona að liðið komist upp úr annarri deildinni. Jafnframt hlakka ég til að spila með ÍBV og vonast ég til að geta hjálpað þeim í komandi baráttu í fyrstu deildinni," sagði Atli við Fótbolta.net í gærkvöldi.
Atli sem er 19 ára gamall var valinn efnilegasti leikmaðurinn í annarri deild karla á síðustu leiktíð í vali fyrirliða og þjálfara sem að Fótbolti.net stóð fyrir.
Atli hefur verið lykilmaður í meistaraflokki Aftureldingar undanfarin fjögur ár en hann skoraði fimm mörk í ellefu leikjum í annarri deildinni á síðustu leiktíð.