Fotbolti.net
01.06.07 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Chelsea fær ungan leikmann frá Oldham (Staðfest)

Chelsea fær ungan leikmann frá Oldham (Staðfest)
Canon

Mynd: NordicPhotos/GettyImages

Chelsea hefur tryggt sér Danny Philliskirk ungan sóknarmann sem kemur frá Oldham Athletic en þónokkur lið í ensku úrvalsdeildinni voru á eftir þessum táning.
Philliskirk er aðeins 16 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við ensku bikarmeistarana. Drengurinn hefur ekki enn lokið skólagöngu og mun klára skólann á næstu tveim árum ásamt því að æfa með unglingaliði Chelsea.

Bolton var eitt þeirra liða sem var á höttunum eftir Philliskirk en hann ákvað að lokum að skrifa undir hjá Chelsea.

,,Við erum ánægðir fyrir hönd Danny. Hann er að ganga til liðs við frábært félag og bestu mögulegu aðstæður og mun það ekkert annað en bæta drenginn," sagði Alan Hardy stjórnarmaður í Oldham Athletic.

,,Eftir að hafa talað við Tony (faðir Philliskirk) er ég sannfærður um að pilturinn er ánægður með nýju aðstæðurnar. Danny sér fram á fjögurra ára öryggi og nú er það í hans höndum að bæta sig sem knattspyrnumaður."

,,Einnig var samið um að við gætum hugsanlega fengið hann að láni síðar meir,"

Chelsea hafa ákveðið að í framtíðinni muni liðið lána nokkura af efnilegri leikmönnum liðsins til Oldham til að öðlast reynslu en það er hluti af kaupverðinu á þessum 16 ára framherja.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.