01.06.08 - 08:13
Brynjar Ingi Erluson
Jose Manuel Pinto til Barcelona (Staðfest)

Jose Manuel Pinto

Mynd: Getty Images

Jose Manuel Pinto

Mynd: Getty Images
Spænska stórveldið Barcelona hafa gengið frá kaupum á markverðinum Jose Manuel Pinto, en hann var þegar á láni hjá félaginu frá Celta Vigo síðan í janúar mánuði.
Pinto kom til Barcelona í janúar til að fylla í skarð Albert Jorquera, varamarkvörð Börsunga, en hann meiddist illa.
Pinto var því fenginn á láni frá Celta Vigo en þessi 32 ára gamli markvörður spilaði þrjá leiki fyrir Börsunga í vetur og stóð sig vel að mati Josep Guardiola sem hefur nú tekið við stjórnartaumunum á Nývangi.
Barcelona borga Celta Vigo 500 þúsund evrur fyrir leikmanninn, og því er Pinto orðinn leikmaður Barcelona að nýju. Þá gerir hann 1 árs samning við félagið, og með möguleika á að framlengja hann um eitt ár, ef vel gengur.

Heimild: Sky