Fotbolti.net
01.06.11 - 10:19
Magnús Már Einarsson

Sam Allardyce tekinn við West Ham (Staðfest)

Sam Allardyce tekinn við West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sam Allardyce hefur verið ráðinn stjóri West Ham sem féll á dögunum úr ensku úrvalsdeildinni.

Allardyce tekur við af Avram Grant sem var rekinn fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni.
Allardyce hefur sjálfur verið í fríi frá fótbolta síðan hann var rekinn frá Blackburn í desember.

Þessi 56 ára stjóri var áður hjá Newcastle og Bolton en hann er spenntur fyrir nýja verkefninu hjá West Ham.

,,Þetta er frábært félag með mikla hefð og trausta stuðningsmenn,\" sagði Allardyce.

,,Ég hefði ekki tekið við starfinu ef ég hefði ekki trú á að við getum farið beint aftur upp í úrvalsdeildina.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.