01.06.11 - 19:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Rafinha til Bayern München (Staðfest)

Márcio Rafael Ferreira de Souza, að öðru nafni Rafinha.

Mynd: Getty Images

Bayern München hefur tilkynnt sín önnur leikmannakaup í dag því eftir Manuel Neuer mun Brasilíumaðurinn Rafinha einnig ganga til liðs við Bayern í sumar eftir að félagið náði samkomulagi við Genoa um kaupverð á leikmanninum, en þetta var staðfest á opinberri heimasíðu Bayern í dag.
Rafinha hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir þriggja ára samning við Bayern en talið er að kaupverðið nemi um sex milljónir evra. Rafinha er 25 ára gamall hægri bakvörður og mun styrkja vörn liðsins gríðarlega á næstu leiktíð sem hefur verið ansi óstöðug í ár.
Þessi fyrrum leikmaður Schalke gekk til liðs við Genoa í fyrra og hefur verið fastamaður í byrjunarliði ítalska liðsins á nýliðnu tímabili. Samt sem áður lýsti Rafinha yfir því að hann vildi snúa aftur í þýsku úrvalsdeildina sem fyrst.
Genoa hefur orðið að ósk hans og selt hann til þýska stórveldisins sem hefur lengi leitað eftir nýjum bakverði. Með komu hans mun Philipp Lahm, fyrirliði Bayern, skipta úr hægri yfir í vinstri bakvarðastöðuna á ný.
Rafinha á einn A-landsliðsleik að baki með Brasilíu og er þriðji leikmaðurinn sem Bayern fær í sumar, en í dag gekk félagið einnig frá kaupum á Manuel Neuer, markverði Schalke og í síðasta mánuð nældi félagið sér sóknarmanninn Nils Petersen á frjálsri sölu frá Energie Cottbus.
Það þykir ekki ólíklegt að Bayern muni halda áfram að styrkja vörnina en félagið á í viðræðum við Manchester City um þýska varnarmanninn Jerome Boateng.