01.06.11 - 17:33
Sebastían Sævarsson Meyer
Manuel Neuer til Bayern München (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Schalke hefur loks samþykkt að selja Manuel Neuer til Bayern München og hann skrifar undir fimm ára samning við Bayern, en þetta staðfesti markmaðurinn sjálfur á blaðamannafundi í dag.
Samkomulag náðist milli félagana í síðasta mánuð en tilboð Bayern hljóðar uppá 18 milljónir evra. Við það geta sjö milljónir evra bæst við en það fer eftir árangri liðsins á næstu leiktíð.
Manuel Neuer er 25 ára gamall og uppalinn hjá Schalke. Hann er nú talinn einn besti markvörður í heimi og er landsliðsmarkvörður Þjóðverja. Hann mun gangast undir læknisskoðun hjá Bayern eftir leikinn með þýska landsliðinu gegn Aserbaidsjan í undankeppni fyrir EM og síðan skrifa undir samninginn að henni lokinni.
,,Ég mjög ánægður með að fara til München og þar bíður mín spennandi áskorun,” sagði Neuer.
,,Ég þekki marga leikmenn í liðinu í gegnum landsliðið og því verð ég örugglega fljótur að aðlagast.”

Heimild: Opinber heimasíða Bayern