01.06.11 - 20:11
Hafliði Breiðfjörð
Gerard Houllier hættur með Aston Villa (Staðfest)

Gerard Houllier er hættur með Aston Villa.

Mynd: Getty Images

Frakkinn Gerard Houllier er hættur í starfi sínu sem knattspyrnustjóri Aston Villa en enska félagið staðfesti þetta í kvöld.
Houllier sem er 63 ára gamall missti af síðasta mánuði tímabilsins vegna hjartavandamála.
Í kjölfar rannsókna hjá læknum í vikunni var búist við að hann myndi hætta með liðið.
Læknar ráðlögðu honum að hann þyrfti lengri tíma til að ná bata og starfsmenn félagsins óttuðust að endurkoma hans myndi bara auka á vandamál hans.
,,Ég er verulega vonsvikinn yfir að fá ekki tækifæri til að stýra Aston Villa á næstu leiktíð,\" sagði Houllier í yfirlýsingu.
,,Heilsa mín hefur batnað verulega síðan ég veiktist 20. apríl og núna ætla ég að taka mér nokkra mánuði til að einbeita mér að því að ná fullum bata áður en ég sný aftur í fótbolta.\"

Heimild: BBC