ÍA 0 - 3 ÍBV
0-1 Alex Freyr Hilmarsson ('40 )
0-2 Sverrir Páll Hjaltested ('55 )
0-3 Sverrir Páll Hjaltested ('84 )
Lestu um leikinn
0-1 Alex Freyr Hilmarsson ('40 )
0-2 Sverrir Páll Hjaltested ('55 )
0-3 Sverrir Páll Hjaltested ('84 )
Lestu um leikinn
ÍBV vann annan leikinn í röð í Bestu deildinni í kvöld þegar liðið fór í heimsókn upp á Skaga. ÍA náði hins vegar ekki að fylgja á eftir frábærum sigri á Íslandsmeisturunum í síðustu umferð.
Það var dramatík eftir um það bil tuttugu mínútna leik þegar Árni Marinó Einarsson virtist brjóta á Sverri Páli Hjaltested en vítaspyrna ekki dæmd. Erik Tobias Sandberg bjargaði síðan á línu í kjölfarið.
Eyjamenn náðu forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Alex Freyr Hilmarsson átti frábært viðstöðulaust skot eftir fyrirgjöf frá Viicente Valor.
ÍA var nálægt því að jafna stuttu síðar þegar Erik átti tilraun rétt framhjá eftir hornspyrnu.
Skagamenn byrjuðu seinni hálfleikinn betur en Sverrir Páll bætti öðru markinu við fyrir ÍBV þegar hann skoraði frábært mark með skoti frá miðju.
Sverrir gerði síðan út um leikinn þegar hann skoraði eftir vandræðagang í vörn ÍA.
FH 0 - 0 Afturelding
Lestu um leikinn
Það var markalaust þegar Afturelding heimsótti FH. Elmar Kári Cogic átti fyrstu tilraun leiksins en skotið hans rétt framhjá markinu.
FH-ingar sóttu í sig veðrið í kjölfarið og fengu fínar stöður en náðu ekki að ógna Jökli Andréssyni í marki Aftureldingar. FH vildi fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks þar sem þeir töldu að boltinn hafi farið í höndina á Axel Óskari en ekkert dæmt.
Kjartan Kári Halldórsson átti skot af löngu færi sem Jökull átti í fullu fangi með að verja. Átta mínútum var bætt við en mörkin létu á sér standa.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 10 | 5 | 3 | 2 | 22 - 13 | +9 | 18 |
4. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
5. Stjarnan | 10 | 4 | 2 | 4 | 17 - 18 | -1 | 14 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir