Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 10:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tími Freysa hjá Brann að ljúka
Mynd: EPA
Freyr Alexandersson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að hætta sem þjálfari hjá Brann eftir tæplega eitt og hálft ár í starfi. Hann kom til félagsins eftir að hann var látinn fara frá Kortrijk í Belgíu.

Félagið vill gera breytingu eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Liðið hefur tapað þremur deildarleikjum í röð, síðast gegn Sarpsborg á heimavelli á föstudag.

Brann situr í 11. sæti deildarinnar með þrettán stig úr tólf leikjum eftir að hafa endað í 4. sæti á síðasta tímabili.

Undir stjórn Freys fór Brann í úrslit norska bikarsins í vor en tapaði á svekkjandi hátt gegn Bodö/Glimt. Þá fór liðið í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar, mætti þar Bologna eftir að hafa náð í níu stig í deildarkeppninni.



Slapp
banner
banner
banner