Fotbolti.net
01.07.07 - 15:19
Hafliði Breiðfjörð

Liverpool fær sextán ára gutta frá Barcelona (Staðfest)

Liverpool fær sextán ára gutta frá Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Liverpool hafa nælt sér í ungan efnilegan leikmann, Dani Pacheco, úr herbúðum Barcelona. Pacheco er 16 ára gamall og hlaut viðurnefnið Banamaðurinn (The Killer) hjá liðsfélögum sínum í Barcelona.
Hann var talinn einn af efnilegustu leikmönnunum í unglingaliði Barcelona en hann kom þangað er hann var aðeins 13 ára gamall frá Malaga. Hann hafnaði því hinsvegar að gera atvinnumannasamning við félagið og ákvað að gera heldur þriggja ára samning við Liverpool.

Pacheco er enn einn ungi leikmaðurinn sem Rafael Benítez er að fá til Liverpool á undanförnum vikum því áður hafði hann fengið Alex Kacaniklic, Marvin Purie, Mikel San Jose, Nikolai Mihailov, Krisztian Nemeth og Andras Simon til að ganga til liðs við akademíuna.

Garcia Pimienta unglingaþjálfari Barcelona viðurkenndi að það væri miki9ll missir í Pacheco: ,,Þetta er mikill missir fyrir félagið því hann er framherji sem hefur mikil gæði," sagði Garcia við Sport. ,,Hann hefur verið aðalmarkaskorari okkar og hefur þegar spilað með unglingaliðinu."

,,Auk Thiago Alcantara og Gai Assulin er hann einn af því sem við höfðum bundið hvað mestar vonir við, en það er ekki hægt að gera neitt lengur. Allt gerðist svo skyndilega."

Fréttirnar af brottför Pacheco til Englands eru enn eitt áfallið fyrir Barcelona sem hefur misst mjög efnilega leikmenn til Englands undanfarin ár og nægir þá að nefna Cesc Fabregas, Gerard Pique og Fran Merida.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.