Fotbolti.net
01.07.07 - 18:24
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Julien Faubert til West Ham (Staðfest)

Julien Faubert til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Julien Faubert hefur gengið til liðs við enska félagið West Ham fyrir 6,1 milljón punda. Þessi 23 ára gamli leikmaður, sem hefur spilað einn leik fyrir franska landsliðið, getur bæði spilað í vörn og á miðju.
Faubert hefur verið hjá Bordeaux síðan árið 2004 en eftir að franska félagið átti að hafa hafnað fjögurra milljóna punda tilboði frá Glasgow Rangers neitaði hann að æfa með liðinu.

,,Ég er mjög ánægður með að bjóða Julien velkominn og er vis um að hann eigi eftir að vera fengur fyrir klúbbinn. Hann er einn efnilegasti leikmaður Evrópu og margir klúbbar voru að reyna að kaupa hann,” sagði Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham.

,,Ég hef verið mjög hrifinn af vilja hans og metnaði. Ég tel að hann verði mjög vinsæll á meðal stuðningsmanna okkar.”

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.