Fotbolti.net
01.07.08 - 11:22
Guðmundur Dagur Ólafsson

Daniel De Ridder til Wigan (Staðfest)

De Ridder í leik með hollenska U-21 árs landsliðinu

De Ridder í leik með hollenska U-21 árs landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hafa fest kaup á hinum 24 ára gamla hollenska vængmanni Daniel De Ridder frá Birmingham City.
De Ridder komst að samkomulagi við Birmingham í gær um að rifta samningi hans við félagið og skrifar undir þriggja ára samning við Wigan en Steve Bruce, knattspyrnustjóri Wigan, fékk hann til Birmingham síðasta sumar þegar hann var stjóri liðsins.

Hollendingnum gekk illa að fóta sig hjá Birmingham og spilaði aðeins tólf leiki með liðinu á síðasta tímabili.

„Þegar þjálfari segir að hann vilji fá þig í sitt lið þá er það mikið hrós, sérstaklega þegar það er jafn stórt lið og Wigan sem er búið að festa sig í sessi í Úrvalsdeildinni,\" sagði De Ridder.

Þetta eru fyrstu kaup Wigan í sumar en Bruce ætlar sér að fá fleiri fyrir komandi átök.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.