01.07.08 - 12:54
Guðmundur Dagur Ólafsson
Chelsea lánar Sahar til Portsmouth (Staðfest)

Ben Sahar

Mynd: Getty Images

Ben Sahar

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur lánað hinn 18 ára gamla Ben Sahar til Portsmouth í sex mánuði en hann var á láni hjá bæði Queens Park Rangers og Sheffield Wednesday í fyrra.
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, hefur verið önnum kafinn við að reyna að styrkja ensku bikarmeistarana og hefur nú betur í baráttu við fjölda annarra liða um Sahar.
Ísraelski framherjinn segist himinlifandi með að vera kominn til Portsmouth og vonast til að ná að sýna sig í ensku Úrvalsdeildinni.
„Ég hef alltaf viljað vera í liði sem spilar í Úrvalsdeildinni og ég er ánægður að vera kominn til Portsmouth. Ég tel mig vera algjörlega tilbúinn í áskorunina sem fylgir því að spila fyrir svona stórt félag,\" sagði Sahar.

Heimild: Sky Sports