01.07.08 - 13:21
Guðmundur Dagur Ólafsson
Tomas Ujfalusi til Atletico Madrid (Staðfest)

Ujfalusi í leik með Fiorentina

Mynd: Getty Images

Ujfalusi í leik með Fiorentina

Mynd: Getty Images
Tékkneski varnarmaðurinn Tomas Ujfalusi hefur gengið til liðs við spænska félagið Atletico Madrid frá Fiorentina á Ítalíu.
Atletico þarf ekki að borga krónu fyrir hann þar sem samningur hans við ítalska liðið var runninn út en hann hafði verið orðaður við fjölda liða í Evrópu eftir að hann hafnaði nýjasta samningstilboði Fiorentina.
Atletico var alltaf talið líklegast til að fá hann og nú hafa þeir staðfest það.
Ujfalusi, sem spilaði yfir 120 leiki með Fiorentina í ítölsku A deildinni á þeim fjórum árum sem hann var hjá félaginu, skrifar undir þriggja ára samning við Atletico. Hann var áður á mála hjá þýska liðinu Hamburg.
Hann var fyrirliði Tékklands á Evrópumóti landsliða sem lauk um síðustu helgi en Tékkar komust ekki upp úr riðlinum sínum þar.

Heimild: Sky Sports