01.07.11 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Frings og Kovermans til Toronto (Staðfest)

Torsten Frings.

Mynd: Getty Images

Torsten Frings.

Mynd: Getty Images
Toronto FC í MLS deildinni hefur samið við reynsluboltana Torsten Frings og Danny Kovernmans.
Hinn 34 ára gamli Frings á að baki 79 landsleiki með Þjóðverjum en hann hefur skorað tíu mörk í þeim.
Frings lék síðast með Werder Bremen en hann hafnaði tilboði um þjálfarastarf þar til að ganga í raðir Toronto.
Hollenski framherjinn Koevermans lék síðast með lið PSV Eindhoven en hann hefur einnig leikið með Sparta Rotterdam og AZ Alkmaar á ferlinum.
Báðir leikmennirnir munu fá vel borgað hjá Toronto og meira en launaþak MLS deildarinnar segir til um en hvert félag má hafa þrjá leikmenn innan sinna raða sem fá meira borgað.

Heimild: Reuters