Fotbolti.net
01.07.11 - 07:33
Magnús Már Einarsson

Jeffrey Bruma til Hamburg (Staðfest)

Jeffrey Bruma til Hamburg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Hamburg SV hefur fengið varnarmanninn Jeffrey Bruma á láni frá Chelsea.
Bruma var í láni hjá Leicester á síðasta tímabili en hann verður núna í láni hjá Hamburg næstu tvö tímabilin.

Síðan Frank Arnesen tók við sem yfirmaður íþróttamála Hamburg hefur hann fengið fjóra unga leikmenn frá sínu gamla félagi Chelsea.

Auk Bruma hefur Arnesen krækt í Michael Mancienne, Gokhan Tore og Jacopo Sala.

Bruma er 19 ára Hollendingur en hann á að fylla skarð Joris Mathijsen sem gekk í raðir Malaga á dögunum.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.