01.07.21 - 20:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ungstirni á allra vörum í Noregi

Mynd: Stabæk

Mynd: Stabæk
<i>„Hann er á allra vörum, Antonio Nusa,"</I> segir í <a href="https://www.eurosport.no/fotball/eliteserien/2021/ydmyk-16-aring-jeg-vil-bare-spille-som-antonio-nusa_sto8398666/story.shtml " target="_blank">grein Eurosport</a>.
Greinin er eins og gefur að skilja um Antonio Nusa, en það er fótboltamaður sem Norðmenn eru mjög spenntir fyrir og það skiljanlega.

Nusa er fæddur árið 2005, já árið 2005, og hann er byrjaður að spila og skora mörk í norsku úrvalsdeildinni.
Hann varð 16 ára fyrir tveimur mánuðum síðan en í gær skoraði hann tvennu þegar Stabæk, lið hans, gerði 3-3 jafntefli við Samúel Kára Friðjónsson og félaga í Viking.
Hann er búinn að skora þrjú í síðustu fjórum leikjum.
Nusa er auðvitað farinn að vekja áhuga utan Noregs. Hann er næst yngst markaskorari í sögu norsku úrvalsdeildarinnar á eftir Martin Ödegaard sem nú spilar fyrir Real Madrid.
Miðað við viðtöl sem Eurosport tók við Nusa og þjálfara hans, Jan Jönsson, þá er Nusa hógvær ungur drengur sem er nú þegar með mikla fótboltagreind. Hann er mjög jarðbundinn en það er bara tímaspursmál hvenær hann flýgur úr hreiðrinu.

Antonio Nusa, Stabaek winger born in April 2005, is making big headlines in Norway.
— Michael Yokhin (@Yokhin) June 30, 2021
On Sunday, the 16-year-old scored an absolutely stunning goal at Bodo/Glimt.
Today he started for the first time and scored twice at Viking.
A very special talent.
Keep an eye on him. pic.twitter.com/WmRhd6ySv5