Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
„Hætt að borða nammi í Tenerife ferðinni þegar hún var tíu ára"
GunnInga í bláa hafinu: Styðjum liðið okkar í blíðu og stríðu
„Eru geggjaðir karakterar og munu bíta fast frá sér“
Tólfan spáir sigri - „Hef bara séð eina Noregstreyju“
Fékk leyfi til að fljúga beint frá Albaníu til Sviss
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
   fös 01. júlí 2022 22:15
Anton Freyr Jónsson
Halldór Smári: Búið að vera svona síðan við vorum allir reknir útaf
Halldór Smári Sigurðsson skorað þriðja mark Víkinga.
Halldór Smári Sigurðsson skorað þriðja mark Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Mér líður bara frábærlega. Ég held að þetta gerist ekki mikið betra fyrir okkur Víkinga að koma á KR-völl, vinna 3-0, halda hreinu og setja hann. Það er náttúrulega bara unreal í rauninni." voru fyrstu viðbrögð Halldórs Smára Sigurðssonar varnarmanns Víkinga en Halldór skoraði þriðja mark Víkinga.


Lestu um leikinn: KR 0 -  3 Víkingur R.

Halldór Smári Sigurðsson var frábær í leiknum í dag aftast hjá Víkingum ásamt því að skora mark í kvöld. Halldór Smári var spurður hvernig honum hafi sín eigin frammistaða verið.

„Ég er bara í skýjunum með það. Mér fannst fyrri hálfleikurinn ekkert sérstakur hjá mér en mér leið betur í seinni og að ná að skora loksins er bara geggjað."

Saga þessara liði hefur verið mikill hiti inn á vellinum og var engin breyting á því í kvöld.

„Þetta er búið að vera svona bara síðan við vorum allir reiknir útaf í einu fyrir tveimur árum og upp úr því hefur myndast meiri hiti en var fyrir og það er enþá þannig í dag og mér finnst það bara geggjað. Það er gaman að vera í „fighting". Þetta eru öðruvísi leikir en við spilum oft þannig mér fannst þetta bara gaman."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner