Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   þri 01. júlí 2025 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ansu Fati til Mónakó (Staðfest)
Mynd: Monaco
Ansu Fati er genginn ti lliðs við Mónakó frá Barcelona á láni út tímabilið. Mónakó fær möguleika á að kaupa hann eftir tímabilið.

Fati er 22 ára gamall og þótti einn efnilegasti leikmaður heims fyrir nokkrum árum en meiðslavandræði hafa sett strik í reikninginn. Hann spilaði 27 leiki og skoraði fjögur mörk fyrir Brighton á láni á síðasta tímabili.

Það er kaupmöguleiki í samningnum en Mónakó getur keypt hann fyrir 11 milljónir evra eftir tímabilið.

Hann fylgir Eric Dier og Paul Pogba til Mónakó en Pogba gekk ti liðs við félagið á dögunum en hann er að koma ferlinum sínum aftur af stað eftir að hafa verið frá keppni í tæp tvö ár þar sem hann var dæmdur í bann fyrir brot á lyfjareglum.
Athugasemdir
banner
banner